Eldfjallaferð

Komdu með í 1 klst fjórhjólaferð um eldfjallasvæðið í Vestmannaeyjum og upplifðu einstakt útsýni sem Vestmannaeyjar og umhverfi hennar hefur uppá að bjóða.

Í ferðinni verður m.a farið á strandstað Pelagus slyssins og farið á staðinn á nýjahrauni þar sem Guðlaugur Friðþórsson náði landi eftir 5-6 km sund í svarta myrkri og köldum sjó eftir að Hellisey VE 503 fórst eins og fram kemur í kvikmyndinni Djúpið. Einnig verður farið um nýjahraunið og inn í miðjan gíg Eldfells og meðfram ströndinni þar sem útsýnið er vægast sagt ótrúlegt.

Tilvalin ferð fyrir alla fjölskylduna um söguslóðir Vestmannaeyja á skemmtilegum fjórhjólum. Fjórhjólin eru sjálfskipt og auðveld í akstri og þarf því enga sérstaka reynslu á þau. Öll fjórhjólin eru 2ja manna og þarf ökumaður að hafa meðferðis gilt ökuskirteini, farþegar aftaná fjórhjólunum þurfa að vera 6 ára eða eldri.

Þessi ferð er undir stjórn leiðsögumanns þar sem gestum stendur til boða að fá vatnsheldan galla, hanska og hjálm.

Upplýsingar um ferðina

Lengd ferðar

Ferðin tekur c.a 1 klukkustund

Mæting

Mæting er 30 mín fyrir brottför

Brottför

Alla daga klukkan 10:30, 12:00, 15:00 eða eftir samkomulagi

Tímabil

1.Apríl – 1.Nóv

Kröfur

Ökuskirteini, Lágmarksaldur farþega er 6 ára.

Erfiðleikastig

Létt, fyrir alla fjölskylduna

Inniheldur

Hjálm, vatnsheldan galla og hanska.
Leiðsögumann

Það sem þú þarft að koma með

Góða skó og góða skapið

Verð

13.900 kr á mann ef 2 saman á hjóli
17.900 kr ef 1 á hjóli
6.900 kr fyrir börn (6 – 16 ára)